Lýsing
Öflugur ofna- og grillhreinsir í úðabrúsa sem hentar til að leysa upp fasta fitu og erfið óhreinindi í ofnum og á grillum. Hentar vel í atvinnueldhúsum, mötuneytum og á veitingastöðum þar sem þörf er á öflugri hreinsun á fitumenguðum yfirborðum.
Notkun: Tryggið að ofninn sé kaldur fyrir hreinsun. Úðið efninu á fitumenguð svæði og látið það vinna áður en yfirborðið er hreinsað með svampi eða klút. Fjarlægið leifar vandlega með vatni og hreinum klút áður en ofninn er notaður aftur. Prófið fyrst á lítt áberandi stað og notið ekki á yfirborð sem þola ekki sterk basísk hreinsiefni.





