Lýsing
Frekar létt en mjög öflug ryksuga með 16 metra vinnuradíus. Vélin er á gúmmídekkjum og mótorinn er hannaður þannig að hann ofhitnar ekki. Barkann má taka af og geyma sérstaklega. Rafmagnssnúran er dregin inn í vélina þegar hún er ekki í notkun. Hraði mótors er stillanlegur. 3 auka stútar fylgja með, ásamt 2 ryksugupokum.