Lýsing
Gold Hug Me er ilmkerti úr Gold línu Spring Air, í fallegu reyklituðu glasi og svartri gjafaöskju. Kertið hefur mjúkan og umvefjandi ilm af sætum ávöxtum sem hentar vel til að skapa hlýlegt og notalegt andrúmsloft á heimilum, í móttökurýmum, á hótelum, veitingastöðum og öðrum rýmum þar sem lögð er áhersla á góða stemningu og fallega framsetningu. Brennslutími er 90 klukkustundir. Fylgið ávallt almennum öryggisreglum við notkun kerta og skiljið logandi kerti aldrei eftir án eftirlits.






