Lýsing
Dúnmjúkar, hvítar, 3ja laga andlitsþurrkur í fallegum ljósbláum kubbi sem hentar vel á hótelherbergjum og í öðrum rýmum þar sem gestum er boðið upp á þægindi og góða þjónustu. Þær eru 21 × 20 cm að stærð og henta vel á baðherbergi hótela, í móttökur, á skrifstofur og í snyrti- og meðferðarstofur.





