Loading...
Brútus / Granít 4L

Brútus / Granít
4 lítrar
3 brúsar í kassa

Loading...

Lýsing

Brútus/Granít er öflugt, fjölnota hreinsiefni sem leysir upp olíu, tjöru, sót, fitu og prótín. Hentar fyrir krefjandi þrif á verkstæðum, í iðnaðarhúsnæði og matvælavinnslu, meðal annars á gólfum, veggjum, vélum, vélasamstæðum og farartækjum. Einnig má nota efnið við hreinsun vinnufatnaðar. Það er vatnsþynnanlegt og án lífrænna leysiefna.

Notkun: Blandið 1–10 dl af hreinsiefni í 10 lítra af vatni eftir aðstæðum og magni óhreininda. Má nota í háþrýstitæki, með eða án kvoðukúts. Ráðlagt notkunarhitastig er 10–60°C og virknitími getur verið allt að 15 mínútur. Við hreinsun vinnufatnaðar má nota allt að 10% blöndu. Skolið eða vindið fatnaðinn vel fyrir vélþvott til að draga úr freyðingu.

pH-gildi