Lýsing
Gold Serenity er ilmkerti úr Gold línu Spring Air, í fallegu reyklituðu glasi og svartri gjafaöskju. Kertið hefur sætan og ávaxtakenndan ilm sem hentar vel til að skapa notalegt andrúmsloft á heimilum, í móttökurýmum, á hótelum, veitingastöðum og öðrum rýmum þar sem lögð er áhersla á góða stemningu og fallega framsetningu.
Brennslutími er 90 klukkustundir.






