- Hrein snilld fyrir reksturinn

Skilmálar Papco hf.

Upplýsingar um seljanda

Papco  hf.
kt: 430383-0949
Stórhöfða 42
110 Reykjavík
587-7788
papco@papco.is
VSK-númer: 12251

Almenn ákvæði


Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru í vefverslun Papco hf.
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Papco annars vegar og kaupanda vöru hins vegar.
Verð á vefsíðu eru án virðisaukaskatts og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og prentvillur. Papco  áskilur sér rétt til að hætta við pantanir í heild eða að hluta ef vara er uppseld eða rangt verð gefið upp.
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Vöruafhending til fyrirtækja


Höfuðborgarsvæðið: Pantanir sem berast fyrir kl. 14:00 eru afgreiddar næsta virka dag eftir að pöntun berst að því gefnu að vara sé til á lager. Í neyðartilvikum eru vörur afgreiddar samdægurs ef mögulegt er.
Landsbyggðin: Pantanir utan höfuðborgarsvæðisins eru afgreiddar alla virka daga fyrir kl. 11:00 í gegnum flutningsmiðstöðvar í Reykjavík.

Vöruafhending til einstaklinga í staðgreiðslu

Pantanir til einstaklinga í staðgreiðslu er eingöngu hægt að sækja í vöruhús Papco. Sækja má pöntun þegar viðskiptavinur hefur fengið sms tilkynningu þess efnis að pöntun sé tilbúin til afhendingar.

Ef pöntun er ekki sótt innan 5 virkra daga er gerður kreditreikningur og pöntun felld úr gildi.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við verð pöntunar í lok kaupferils ef pöntunin er lægri en 25.000 kr. án vsk innanbæjar. Sendingarkostnaður er 2.800 kr án vsk.

Sendingarkostnaður út á land (með Samskip, Landflutningum) bætist við ef pöntunin er lægri en 50.000 kr án vsk. Sendingarkostnaður er innheimtur af Samskip.

Hægt er að velja um að sækja vöru og eru upplýsingar um opnunartíma vöruafgreiðslu á vefsíðunni.
Ef vara er ekki sótt innan 5 virkra daga er gerður kreditreikningur og pöntunin felld úr gildi.

Vörur til einstaklinga í staðgreiðslu fást ekki sendar.

Vöruskil

Athugasemdir vegna reikninga, vöruskemmda, ranglega afgreiddrar vöru, vöruvöntunar eða ástands vöru þurfa að berast til þjónustuvers Papco eða í tölvupósti til papco@papco.is innan 10 daga frá dagsetningu reiknings, annars telst reikningur, svo sem magn og ástand vörunnar samþykktur.

Vöru fæst eingöngu skilað sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum.

Papco gefur sér 5 virka daga til leiðréttingar reikninga.

Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins skulu endursendar með Landflutningum. Kreditreikningur er gerður þegar varan kemur í hús.

Hafi vara skemmst í meðhöndlun starfsmanna þriðja aðila (t.d. flutningsaðila) eða ef misræmi er á milli fjölda afhentra vara og vöruskjals, þarf móttakandi vöru að gera athugasemd við flutningsaðila við vöruafhendingu.

Reikningsviðskipti

Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli Papco og viðskiptavinar. Dráttarvextir falla á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga, í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, með síðari breytingum. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast til Papco innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptavini einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.

Vefverslun og mínar síður

Viðskiptavinir bera að öllu leyti ábyrgð á að uppfæra og viðhalda lista yfir virka notendur með aðgang að mínum síðum fyrir sinn viðskiptareikning/fyrirtæki.

Viðskiptavinir bera ábyrgð á að óvirkja sína notendur sem ekki eiga að hafa lengur aðgang að kerfinu.

Notendum er heimilt að nota sinn aðgang til innskráningar en er óheimilt með öllu að deila aðgangs- og innskráningarupplýsingum sínum með þriðja aðila.

Papco ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna notkunar þriðja aðila og notkunar / misnotkunar þeirra á mínum síðum.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að fara eftir gildandi lögum og reglum er varðar heimildir til innkaupa.

Viðskiptavini ber að tilkynna Papco verði hann þess vís að hann hafi aðgang að kaupum á vörum sem honum er óheimilt að versla samkvæmt gildandi lögum og reglum.

Viðskiptaskilmálar Papco

Gjalddagi er úttektarvika + 5 dagar nema um annað sé samið. Sé greitt eftir gjalddaga reiknast vextir frá og með gjalddaga sem og innheimtukostnaður.

Berist greiðsla ekki á gjalddaga áskilur Papco sér rétt til að stöðva frekari úttektir þar til full skil hafa verið gerð.

Viðkomandi fyrirtæki þarf að vera í áhættuflokki 1 – 5 skv. CIP áhættumati Creditinfo. Viðkomandi fyrirtæki sé ekki á vanskilaskrá Creditinfo.

Fari fyrirtæki í CIP 8 – 10 eða ef það lendir í alvarlegum vanskilum, er Papco heimilt að breyta greiðslufyrirkomulagi í staðgreiðslu án frekari fyrirvara.

X